Nemendur 5.—10. bekkjar komu saman í vel heppnuðu barnaþingi á vegum Barnvæns sveitarfélags UNICEF, sem fram fór í Vopnafjarðarskóla í fyrsta sinn, föstudaginn 23. febrúar.
Barnaþing gefur tækifæri á að fylgja hugmyndum barna eftir og koma tillögum þeirra í framkvæmd. Þingið er ætlað til að efla börn til þátttöku í lýðræðislegri umræðu en barnaþingið tengist innleiðingu Vopnafjarðarhrepps sem Barnvænt sveitarfélag.
Nemendum var skipt um í sex hópa og sköpuðust miklar umræður. Málefnin sem fjallað var um voru skipulags- og umhverfismál, forvarnir og andleg heilsa, skólamál, félagslíf og menning, fordómar og fræðsla í félagsmiðstöð og skóla.
Niðurstöður þingsins verða lagðar fyrir stýrihóp Barnvæns sveitarfélags á Vopnafirði. Í framhaldinu verður mótuð aðgerðaráætlun sem mun útlista með skýrum hætti markmið Vopnafjarðar með innleiðingu Barnvæns sveitarfélags og þeim aðgerðum sem þörf er að ráðast í til að innleiða Barnasáttmálann.
![](/media/427124937_1113787043274423_3567387563629390617_n.jpg)
![](/media/423903977_416319441071363_455134449245270516_n.jpg)
![](/media/427147649_356947770576530_2351657435652430321_n.jpg)
![](/media/429106587_199966466542181_7542703666505083956_n.jpg)
![](/media/429119409_349415224751340_721219152152071756_n.jpg)
![](/media/429609819_377594625228321_8475543466347084992_n.jpg)
Myndir af barnaþinginu tók Svava Birna Stefánsdóttir.