Vopna­fjarð­ar­hreppur býður í sund 17. febrúar 2021

Miðviku­daginn 17. febrúar bjóða ýmis sveit­ar­félög um allt land frítt í sund sem auka­skammt af G-víta­míni dagsins sem er „Hreyfðu þig daglega“. Að fara í sund, taka 100 metrana eða bara láta þreytuna líða úr sér í pott­inum er G-vítamín í sinni tærustu mynd!

Um G-vítamín á þorra#um-g-vitamin-a-thorra

Við þurfum öll að rækta og vernda geðheilsu okkar út lífið. Rétt eins og með líkam­lega heilsu, þar sem öllum er ráðlagt að taka vítamín daglega, gerir margt smátt eitt stórt í geðrækt. Geðhjálp býður því 30 skammta af G-víta­míni á þorr­anum; ráðlegg­ingar sem er ætlað að bæta geðheilsu. Það eina sem þarf að gera er að taka þátt og nýta sér G-víta­mínið, sem er ókeypis og án auka­verkana!

G-vítamín dagsins: Hreyfðu þig daglega#g-vitamin-dagsins-hreyfdu-thig-daglega

Tímarnir hafa breyst. Kyrr­seta er orðin algengari en áður en á sama tíma hafa hraði og streita aukist. Þess vegna hefur hreyfing aldrei verið mikil­vægari. Ef þú hreyfir þig reglu­lega, minnkar streita og spenna og lífs­gæðin aukast. Leyfðu árstíð­unum að hafa áhrif á val þitt. Ekki ætla þér um of og hikaðu ekki við að biðja um leið­bein­ingar eða aðstoð. Hreyfðu þig með öðrum eins oft og þú getur. Notaðu tónlist, ef þér finnst hún hvetja þig áfram eða hjálpa þér að slaka á. Finndu þann tíma sem hentar best og mundu eftir mikil­vægi öndunar meðan á hreyfing­unni stendur. Virtu líkama þinn, ekki festast í að breyta honum með ytri viðmið að leið­ar­ljósi, einblíndu frekar á hið innra. Rann­sóknir hafa sýnt að hreyfing vinnur með geðheilsu.

G-víta­mínið er byggt á Geðorð­unum 10 og 14 Lífs­orðum Héðins Unnsteins­sonar og Þórdísar Rúnars­dóttur.

Við búum öll við geð, rétt eins og við erum öll með hjarta.