Opnað hefur verið fyrir umsóknir í menningarsjóð Vopnafjarðarhrepps!
Sjóðurinn er ætlaður til að efla og styðja við verkefni á sviði menningar- og lista á Vopnafirði og skulu þau einkennast af metnaði, fjölbreytni, samvinnu og virkri þátttöku íbúa og gesta. Einnig eiga þau að endurspegla aukinn stuðning við grasrót í menningarlífi og stuðla að frumkvæði einstaklinga með því að styðja við bakið á hvers kyns sköpunarstarfi.
Umsókninni þarf að fylgja sundurliðuð kostnaðaráætlun fyrir verkefnið ásamt greinargerð.
Meðfylgjandi eru nýuppfærðar reglur sjóðsins sem umsækjendur eru hvattir til að kynna sér.
Umsóknarfrestur er til og með 1. apríl 2024.
Sótt er um á meðfylgjandi eyðublaði og skal umsókn skilað inn rafrænt til Írisar Eddu á irisj@vfh.is.
Úthlutunarreglur Menningasjóðs Vopnafjarðarhrepps 12.02.25 | pdf / 55 kb |
Eyðublað - Menningarsjóður | doc / 48 kb |