Menn­ing­ar­sjóður Vopna­fjarð­ar­hrepps auglýsir eftir umsóknum

Á sveit­ar­stjórn­ar­fundi 21. mars s.l. voru samþykktar reglur menn­ing­ar­sjóðs Vopna­fjarð­ar­hrepps en sjóðurinn er á vegum menn­ingar- og atvinnu­mála­nefndar.

Sjóð­urinn er ætlaður til að efla og styðja við verk­efni á sviði menn­ingar-, lista- og ferða­mála á Vopna­firði og skulu þau einkennast af metnaði, fjöl­breytni, samvinnu og virkri þátt­töku íbúa og gesta. Einnig þurfa þau að endur­spegla aukinn stuðning við grasrót í menn­ing­ar­lífi og ferða­málum og stuðla að frum­kvæði einstak­linga/fyrir­tækja með því að styðja við bakið á hvers kyns sköp­un­ar­starfi.

Í reglum sjóðsins segir að úthluta skuli styrkjum tvisvar sinnum á ári; 1. apríl og 1. október. Þar sem knappur tími var frá samþykkt sveit­ar­stjórnar og úthlut­un­ar­tímans 1. apríl í ár, er dagsetn­ingu fyrstu úthlut­unar hliðrað til 15. maí n.k..

Umsókn­inni þarf að fylgja sund­urliðuð kostn­að­ar­áætlun fyrir verk­efnið ásamt grein­ar­gerð.

Meðfylgj­andi eru reglur sjóðsins sem umsækj­endur eru hvattir til að kynna sér.

Umsækj­endur geta verið einstak­lingar, fyrir­tæki og félaga­samtök.

Umsókn­ar­frestur er til og með 12. maí 2024.

Sótt er um á meðfylgj­andi eyðu­blaði og skal umsókn skilað inn rafrænt til Írisar Eddu á irisj@vfh.is.

Reglur menningarsjóðs#reglur-menningarsjods

Eyðublað#eydublad

Nánari upplýsingar #nanari-upplysingar