Dagur leikskólans er haldinn 6. febrúar ár hvert og að þessu sinni ber daginn upp á laugardag.
Þetta er í 14. sinn sem þessum skemmtilega degi er fagnað.
Markmið dagsins er að beina sjónum að leikskólanum og því gróskumikla starfi sem þar fer fram.
6. febrúar er merkilegur dagur í sögu leikskólans því það var einmitt á þeim degi árið 1950 sem frumkvöðlar leikskólakennara stofnuðu fyrstu samtök sín.
Orðsporið hvatningarverðlaun#ordsporid-hvatningarverdlaun
Í tilefni af degi leikskólans var Orðsporið nú veitt í áttunda sinn. Orðsporið eru hvatningarverðlaun sem veitt eru þeim sem þykja hafa skarað fram úr í að efla orðspor leikskólastarfs í landinu og hafa unnið ötullega í þágu leikskóla og leikskólabarna.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, upplýsti á morgunverðarfundi RannUng 5. febrúar að handhafi Orðsporsins 2021 væri leikskólastigið.
Í ávarpi sínu sagði hún meðal annars: “Leikskólastigið hefur staðið í ströngu undanfarið ár og mikið hefur mætt á kennurum, stjórnendum og öllu starfsfólki leikskólanna við að halda leikskólastarfi gangandi. Unnið hefur verið algjört þrekvirki á leikskólastiginu og fyrir það ber að þakka. Ég geri mér grein fyrir því að þetta hefur verið á tímum mjög erfitt. Þess vegna vil ég þakka öllum þeim sem starfa á leikskólastiginu fyrir þeirra vinnu. Þið eigið svo sannarlega skilið Orðsporið 2021.“
Í tilefni dagsins#i-tilefni-dagsins
Í tilefni dagsins ætla nemendur og starfsfólk leikskólans Brekkubæjar að hengja upp listaverk á girðinguna umhverfis leikskólalóðina föstudaginn 5. febrúar.
Íbúar og aðrir eru hvattir til að staldra við á leið sinni um Lónabrautina næstu daga og virða fyrir sér listaverk ungu kynslóðarinnar.
Það er ekki á hverjum degi sem listasýning verður á vegi manns um Lónabrautina.
Njótið!