Veiðihús í landi Hofs við Hofsá breyting á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag – kynning á vinnslutillögum
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum þ. 18. apríl 2024 að kynna vinnslutillögu fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps 2006-2026 vegna byggingar á nýju veiðihúsi í landi Hofs í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Samhliða er kynnt vinnslutillaga nýs deiliskipulags svæðisins í samræmi við 3. mgr. sömu laga.
Breytingin felur í sér að landnotkun á um 2,2 ha svæði er breytt úr landbúnaðarsvæði yfir í verslunar og þjónustusvæði VÞ5 þar sem gert verður ráð fyrir nýju veiðhúsi við Hofsá. Nánari skilmálar og hönnun svæðisins er sett fram í deiliskipulagi.
Ofangreindar skipulagstillögur eru aðgengilegar á heimasíðu sveitarfélagsins www.vopnafjardarhreppur.is og í gegnum vef Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is undir málsnúmerum 265/2023 og 439/2024.
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 15. maí 2024. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið sigurdur.jonsson@efla.is
Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn í Vopnafjarðarhreppi,
Sigurður Jónsson