Veiði­dagar Vopna­fjarð­ar­hrepps í Hofsá 2024

Veiði­dagar Vopna­fjarð­ar­hrepps í Hofsá haustið 2024 eru lausir til umsóknar fyrir íbúa Vopna­fjarðar.

Um er að ræða fjóra dagparta á tíma­bilinu 17. til 19. sept­ember 2024.

Umsóknir skulu inni­halda nafn, kenni­tölu, síma­númer og netfang umsækj­anda.

Umsóknum skal skilað á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps eða á netfangið skrif­stofa@vfh.is merkt „Bænda­dagar 2024“.

Skil­yrði fyrir þátt­töku er að lögheimili sé skráð í Vopna­fjarð­ar­hreppi.

Umsókn­ar­frestur er til og með sunnu­degi 1. sept­ember 2024.

Allar umsóknir verða settar í pott sem dregið verður úr þann 2. sept­ember 2024 og í fram­haldi af því verður haft samband við veiði­leyf­is­hafa.