Veiði­dagar Vopna­fjarð­ar­hrepps í Hofsá 2022

Veiði­dagar Vopna­fjarð­ar­hrepps í Hofsá sumarið 2022 eru lausir til umsóknar fyrir íbúa Vopna­fjarðar.

Um er að ræða fjóra dagparta á tíma­bilinu 13. til 15. sept­ember 2022.

Umsóknir skulu innhalda nafn, kenni­tölu, síma­númer og netfang umsækj­anda.

Umsóknum skal skila á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps eða á netfangið skrif­stofa@vfh.is merkt “Bænda­dagar 2022“.

Umsókn­ar­frestur er til og með miðviku­degi 29. júní 2022.

Allar umsóknir verða settar í pott sem dregið verður úr þann 30. júní 2022 og í fram­haldi af því verður haft samband við veiði­leyf­is­hafa.