Veiði­dagar í Hofsá 2021

Í dag var dregið úr nöfnum þeirra íbúa sveit­ar­fé­lagsins sem höfðu skráð sig í lukkupott Vopna­fjarð­ar­hrepps vegna veiði­leyfa í Hofsá 2021, en umsókn­ar­frestur rann út þann 29. júní s.l.

Það er ánægju­legt að greina frá því að aldrei hafa fleiri nöfn verið í pott­inum en fjöldi þátt­tak­enda tvöfald­aðist frá fyrra ári.

Lukku­legum veiði­leyf­is­höfum hefur nú þegar verið tilkynnt um útdráttinn!