Öllum börnum, að jafnaði á aldrinum 6-16 ára, er skylt að sækja grunnskóla skv. lögum um grunnskóla nr91/2009 með síðari breytingum. Skv.sömu lögum er sveitarfélögum skylt að sjá til þess að skólaskyld börn sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, og börn sem hefur verið ráðstafað í fóstur til fósturforeldra, sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu, njóti skólavistar eftir því sem nánar segir í grunnskólalögum.
Vinsamlegast sækið um skólavist hér fyrir skólaárið 2024-2025 í Vopnafjarðarskóla.