Stóri Plokkdagurinn er sunnudaginn 28. apríl 2024!
Vopnafjarðarhreppur hvetur íbúa til að plokka rusl í sínu nærumhverfi og taka þátt í stóra plokkdeginum sem haldinn verður þann dag um allt land.
Sveitarfélagið verður með gám fyrir utan gámasvæðið uppi á Búðaröxl fyrir poka.
Hvað þarf ég?
- Plastpoka
- Snæri eða bensli til að loka plastpokunum svo ekkert fjúki úr þeim þegar búið er að fylla þá
- Plokktangir eru ágætar, ekki nauðsynlegar.
Hvernig erum við útbúin:
- Klæðum okkur eftir aðstæðum. Hanskar eru ákjósanlegir.
Frágangur á plokki:
- Bindum vel fyrir pokana og skorðum þá þannig að ekki fjúki upp úr þeim og þeir fjúki ekki sjálfir
- Förum með í gáminn sem verður staðsettur á Búðaröxl