Út er komin ný stefna Vopnafjarðarhrepps í íþrótta,- æskulýðs- og tómstundamálum. Stefnan var samþykkt á fundi sveitarstjórnar í apríl 2020.
Við vinnu að stefnunni var tekið mið af „Stefnumótun Mennta- og menningarmálaráðuneytis í íþróttamálum“ sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf út árið 2018. Einnig var tekið mið af „Stefnumótun í æskulýðsmálum“ sem Mennta- og menningarmálaráðuneytið gaf út árið 2014 og skýrslunni „Ábyrgð aðila sem standa fyrir félags- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga“ frá árinu 2016.
Stefnan í heild:
Íþrótta-, æskulýðs- og tómstunda- stefna | pdf / 1 mb |
Stefnunni er skipt upp í fjóra meginkafla. Sett eru fram markmið í hverjum kafla og leiðir til þess að ná markmiðum. Kaflarnir eru:
- Íþróttastarf barna og unglinga
- Almenningsíþróttir
- Keppnis- og afreksíþróttir
- Æskulýðs- og tómstundastarf.