Á fundi sveitarstjórnar í desember 2018 var tekin ákvörðun um að hefja vinnu við undirbúning byggingar á félagslegum íbúðum á Vopnafirði að því gefnu að umsókn um stofnframlag Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar yrði samþykkt til framkvæmdanna. Stefnt var að því að byggja í fyrsta fasa 6 íbúðir sem væru hannaðar með þarfir tekjulágra íbúa í huga og kæmu að einhverju leyti í staðinn fyrir óhentugra húsnæði sem væri í notkun í þeim tilgangi. Reynslan af verkefninu yrði nýtt til að taka ákvörðun um frekari uppbyggingu á húsnæði fyrir aldraða, öryrkja eða aðra sem þurfa á sérhönnuðu húsnæði að halda.
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á 18. fundi sínum kjörtímabilið 2018-2022 þann 21.febrúar 2019 húsnæðisáætlun fyrir sveitarfélagið fyrir árin 2018 til 2026 sem var unnin af Eflu verkfræðistofu.
Í niðurstöðum húsnæðisáætlunarinnar kemur fram að lítil uppbygging á íbúðarhúsnæði hefur átt sér stað á Vopnafirði til fjölda ára. Síðast var reist íbúðarhús á Vopnafirði árið 2013. Yfirgnæfandi meirihluti íbúðarhúsnæðis eða um 80% eru stærri einbýli eða yfir 100 fermetrar að stærð og hefur verið vöntun á minni og hagkvæmari eignum.
Þróun húsnæðismála og samsetning íbúa í Vopnafjarðarhreppi er að breytast. Ungt fólk hefur snúið aftur heim með fjölskyldur sem er ákaflega jákvæð þróun.
Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta húsnæðisöryggi þeirra sem eru undir tekju- og eignamörkum við upphaf leigu. Stofnframlög eru veitt til byggingar og kaupa á almennum íbúðum. Vopnafjarðarhreppur sótti um og fékk úthlutað stofnframlagi til byggingar 6 íbúða frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.
Gengið var frá samningum og var það fyrirtækið Hrafnshóll ehf. sem sá um byggingu íbúðanna. Hrafnshóll ehf. hefur þegar byggt sambærileg hús í Vík í Mýrdal, Blönduósi og víðar á landinu og er því komin nokkur reynsla af þessari húsagerð i framkvæmd og rekstri.
Af þeim átta íbúðum sem byggðar voru eru sex í eigu sveitarfélagsins og verða þær allar leigðar út. Alls bárust 11 umsóknir um þessar sex íbúðir og því er ljóst að nokkur eftirspurn er eftir leiguhúsnæði í sveitarfélaginu. Það hefur lítið sem ekkert verið byggt hér frá aldamótum og kröfur hafa breyst og því mætti ætla af þessari eftirspurn að dæma að þörf sé á uppbyggingu húsnæðis hér. Þetta mun vonandi leiða af sér hreyfingu á fasteignamarkaði hér og hækkun á fasteignamati en það hefur ekki hækkað í samræmi við markaðsverð undanfarin ár.
Hrafnshóll ehf. afhenti íbúðirnar til sveitarfélagsins þann 15. desember síðastliðinn aðeins tæpum fimm mánuðum eftir að hafist var handa við byggingu húsanna.
Það er ánægjulegt að greina frá því að í dag voru lyklar afhentir þeim leigjendum sem hyggjast koma sér fyrir í nýju húsnæði fyrir jólahátíðina. Óskum við þeim og okkur öllum íbúum sveitarfélagsins innilega til hamingju með þessar nýju íbúðir.