Sveitarstjórn og starfsfólk Vopnafjarðarhrepps sendir íbúum og landsmönnum öllum góðar óskir um gleðilega jólahátíð.
Nú þegar árið 2020 er senn á enda og jólin að ganga í garð með aðeins öðrum hætti en við höfum átt að venjast viljum við þakka ykkur öllum fyrir þá fórnfýsi, umburðarlyndi og samheldni sem þið hafið sýnt á árinu. Saman komumst við í gegnum þetta tímabil. Nú fer daginn að lengja á ný og framtíðin er björt.
Austfirðingar hafa undanfarna daga verið rækilega minntir á þann ógnarkraft sem býr í náttúrunni og veðurfarinu. Sveitarstjórn og starfsfólk Vopnafjarðarhrepps sendir íbúum Seyðisfjarðar hlýjar kveðjur í kjölfar þeirra hörmulegu atburða sem þar hafa átt sér stað undanfarna daga. Hugur okkar er hjá ykkur.
Megum við öll eiga gleðileg jól og farsælt nýtt ár!