Samkvæmt samþykkt um hunda- og kattahald í Vopnafjarðarhreppi skulu hundar og kettir færðir til ormahreinsunar ár hvert.
Hvar og hvenær?#hvar-og-hvenaer
Þriðjudaginn 16. apríl 2024 skulu hunda- og kattaeigendur koma með dýr sín í áhaldahús/þjónustumiðstöð sveitarfélagsins.
Mæta skal með ketti á milli kl. 10:00-11:00 og hunda á milli kl. 11:00-12:00.
Leyfisgjald verður innheimt með greiðsluseðli, 13.950 kr. fyrir hunda og 8.406 kr. fyrir ketti. Innifalið í leyfisgjaldi er heilbrigðisskoðun dýralæknis, ormahreinsun og trygging, auk umsýslugjalds sveitarfélagsins.
Vakin er athygli á því að vanræki eigendur dýra þessa skyldu sína er það brot á samþykktum um hunda- og kattahald í Vopnafjarðarhreppi. Eigendum óskráðra dýra er bent á að skrá dýr sín strax og er það í boði hjá dýralækni sem verður á staðnum.