Heilsudagar Brims hf. og Vopnafjarðarhrepps er samvinnuverkefni með það að leiðarljósi að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá alla daga vikunnar sem tekur mið af þáttum eins og hreyfingu, mataræði og líkamsbeitingu.
Við fáum til okkar úrval af góðu fólki með mikla þekkingu og eins reynum við að nýta þá miklu og góðu þekkingu sem einstaklingar í samfélaginu búa yfir.
Við vonum að sem flestir hafi gagn og gaman af þessari dagskrá.
Heilsuefling snýst um að fólk sé raunhæft í því sem það er að gera. Lítil skref í rétta átt er raunhæf leið í átt að markmiði.
Stöndum vörð um eigið heilbrigði.
Brim hf. og Vopnafjarðarhreppur
Selárlaug#selarlaug
Frítt verður í Selárlaug alla vikuna 28. nóvember til 4. desember!
Opnunartími laugarinnar er:
Mánudaga til föstudaga á milli klukkan 14 og 19.
Laugardaga og sunnudaga á milli klukkan 12 og 16.
Íþróttahús Vopnafjarðar#ithrottahus-vopnafjardar
Íþróttahús Vopnafjarðar býður upp á frían prufutíma í líkamsræktina ásamt því að bjóða upp á frían prufutíma í sauna. Áríðandi er að tímar í sauna séu bókaðir í síma 473 1492.
Opnunartími í líkamsrækina er :
Mánudaga á milli klukkan 13:30 og 21:30
Þriðjudaga á milli klukkan 13:00 og 21:30
Miðvikudaga á milli klukkan 13:30 og 21:30
Fimmtudaga á milli klukkan 13:30 og 21:30
Föstudaga á milli klukkan 13:30 og 21:30
Laugardaga á milli klukkan 10 og 14.
Mánudagur 28. nóvember#manudagur-28-november
Dagskrá:
- Klukkan 9 til 10 – crossfit fyrir byrjendur í 690 með Lindu Björk og Petru Sif. Skráning hjá Lindu í síma 892 2382 eða á messenger.
- Klukkan 10 til 11 – crossfit fyrir lengra komna í 690 með Lindu Björk og Petru Sif. Skráning hjá Lindu í síma 892 2382 eða á messenger.
- Indíana Rós, kynfræðingur, mætir í grunnskólann með fræðslu fyrir nemendur í 5. til 10. bekk.
- Klukkan 15 til 16 – kynning á crossfit fyrir börn í 8. til 10. bekk í 690 með Lindu Björk og Petru Sif. Skráning hjá Lindu í síma 892 2382 eða á messenger.
- Klukkan 16 – Indíana Rós, kynfræðingur, verður með erindi fyrir foreldra og aðstandendur barna í sal Vopnafjarðarskóla í boði Foreldrafélags Vopnafjarðarskóla.
- Klukkan 17:45 – blakmót Brims fyrir 12 ára og eldri. Reynt að draga í lið eftir styrkleika. Öll velkomin. Skráning hjá Lindu í síma 892 2382 eða á messenger.
Þriðjudagur 29. nóvember#thridjudagur-29-november
Dagskrá:
- Klukkan 10 – ganga upp Jennýjarstíg undir leiðsögn Jennýjar ef veður leyfir. Mæting við áhaldahúsið.
- Klukkan 10:15 – Pálmi Hafþór Ingólfsson mætir í hitting hjá 60+ í Miklagarði. Pálmi er með reynslu frá Janus heilsueflingu og fer yfir ýmislegt sem við kemur heilbrigði.
- Fulltrúar frá Rafíþróttasambandi Íslands verða með erindi fyrir 5. til 10. bekk Vopnafjarðarskóla.
- Leikskólinn Brekkubær heimsækir íþróttahúsið.
- Klukkan 14 til 15 – crossfit fyrir 8. til 10. bekk í 690 undir leiðsögn Lindu og Petru. Skráning hjá Lindu í síma 892 2382 eða á messenger.
- Klukkan 16 – fulltrúar Rafíþróttasambands Íslands verða með erindi fyrir foreldra og aðra áhugasama í sal Vopnafjarðarskóla.
- Klukkan 17 til 18 – opinn tími í Zumba með Gulmiru í Miklagarði
- Klukkan 17:30 til 19 – opið hús í félagsmiðstöðinni Drekanum fyrir alla. Kjörið tækifæri fyrir foreldra að kíkja á aðstöðuna og leika aðeins með börnunum. Pool, spil, borðtennis og fleira á staðnum.
Miðvikudagur 30. nóvember#midvikudagur-30-november
Dagskrá:
- Klukkan 12 til 13 – Jóga með Gulmiru í Miklagarði. Opinn tími fyrir alla. Skráning hjá Gulmiru í tölvupósti á gulmirakanakova@gmail.com eða á facebook.
- Klukkan 16:30 til 17:30 – opinn tími í crossfit í 690 með Lindu Björk og Petru Sif. Skráning hjá Lindu í síma 892 2382 eða á messenger.
- Klukkan 18 til 20 – opinn tími í badminton í íþróttahúsi Vopnafjarðar fyrir 16 ára og eldri.
Fimmtudagur 1. desember #fimmtudagur-1-desember
Dagskrá:
- Klukkan 10:30 – eldri borgarar bjóða áhugasömum í boccia í Miklagarði.
- Klukkan 12:30 til 13:30 – kynning á bandvefslosun hjá Bjarney í 690. Lærðu aðferðir til að minnka stress og streitu ásamt því að losa um spennu, auka hreyfi- og stöðuskyn, styrkja og líða vel í eigin líkama með bandvefslosun. Skráning hjá Lindu Björk í síma 892 2382 eða á messenger.
- Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og þúsundþjalasmiður í lífsleikni heldur fyrirlestra í leik- og grunnskólum um lestur og lífið.
- Klukkan 15 – Þorgrímur Þráinsson verður með fyrirlestur í Miklagarði – “Hvernig búum við til liðsheild og liðsanda?“
- Klukkan 16:30 – ljósin verða tendruð á jólatré miðbæjarins og á eftir verður aðventurölt um bæinn þar sem fyrirtæki bjóða í heimsókn.
Föstudagur 2. desember#fostudagur-2-desember
Dagskrá:
- Klukkan 10 til 11 – kynning á bandvefslosun hjá Bjarneyju í 690. Lærðu aðferðir til að minnka stress og streitu ásamt því að losa um spennu, auka hreyfi- og stöðuskyn, styrkja og líða vel í eigin líkama með bandvefslosun. Skráning hjá Lindu Björk í síma 892 2382 eða á messenger.
- Klemenz Sæmundsson m.sci. í matvælafræði, næringarfræðingur, íþróttakennari og þjálfari mætir í grunnskólann og fer yfir heilbrigt mataræði og heilbrigðan lífsstíl.
- Klukkan 12:30 – Klemenz Sæmundsson heldur fyrirlestur í Miklagarði um heilbrigt mataræði, heilbrigðan lífsstíl og líkamsbeitingu við vinnu.
- Klukkan 16 til 18 – kynning og kennsla á golfi í golfhermi með Baldvini Eyjólfssyni í Miklagarði.