Slysavarnardeildin Sjöfn kom færandi hendi í Selárlaug nú á dögunum og afhenti sundlauginni bæði kúta og sundjakka.
Eins og við vitum er mikilvægt að ósyndir noti armkúta eða sundjakka af viðurkenndri gerð sem sundstöðum ber að hafa til útláns samkvæmt reglum um öryggi á sundstöðum.
Við kunnum Slysavarnardeildinni bestu þakkir fyrir gjöfina!
Á myndinni: Þórhildur Sigurðardóttir, Kristrún Ósk Pálsdóttir, Stasia Burba og Halldóra S. Árnadóttir.