Fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árin 2026-2029 var samþykkt við seinni umræðu sveitarstjórnar fimmtudaginn 11. desember síðastliðinn.
Líkt og undanfarin ár hefur rekstur sveitarfélagsins verið rýndur vel og reynt að greina hvert hann stefnir og hvar hægt er að gera betur.
Helstu niðurstöður fjárhagsáætlunar Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2026 í milljónum kr:
Rekstrarniðurstaða
Samstæða A hluta neikvæð um 10 m.kr.
Samstæða A og B hluta jákvæð um 73 m.kr.
Fjárfestingar
Samstæða A hluta: 72,5 m.kr.
Samstæða A og B hluta: 223,5 m.kr.
Afborganir langtímalána
Samstæða A hluta: 43 m.kr.
Samstæða A og B hluta: 78,5 m.kr.
Í fjárhagsáætlun 2026 eru áætlaðar heildartekjur 1.612 m.kr. Veltufé frá rekstri er áætlað 199 m.kr. Handbært fé í árslok 2026 er 115 m.kr.
Eigið fé er áætlað neikvætt um 250 m.kr. í A hluta en jákvætt um 950 m.kr. samstæðu í árslok 2026. Almennt hækka gjaldskrár 3,5%.
Fjárfestingar ársins 2026 eru áætlaðar 223,5 millj.kr.
Eigið fé er áætlað neikvætt um 250 m.kr. í A hluta en jákvætt um 950 m.kr. samstæðu í árslok 2026. Almennt hækka gjaldskrár 3,5%.
Fjárfestingar ársins 2026 eru áætlaðar 223,5 millj.kr.
Skuldahlutfall samstæðu A og B er 88% í árslok 2026.