Kynning á deili­skipu­lagi Holta­hverfis

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps auglýsir hér með opið hús í Mikla­garði þar sem íbúar geta kynnt sér drög að að nýju deili­skipu­lagi fyrir Holta­hverfið á Vopna­firði, skv. ákv. gr. 5.6.1 í skipu­lags­reglu­gerð.

Skipu­lagstil­lagan er kynnt á vinnslu­stigi í samræmi við 4. mgr. 40 gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Deili­skipu­lagið nær til Holta­hverfis, íbúða­byggð­ar­innar efst í kaup­túninu. Ekkert deili­skipulag nær til þessa svæðis í dag. Mark­miðið er að ná fram heil­stæðu skipu­lagi og yfir­bragði fyrir hverfið sem eina heild. Þá er stefnt að nýtingu auðra svæða undir nýjar íbúða­húsa­lóðir og nýta betur land og innviði í þétt­býlinu, ásamt því að styrkja hverfið á sama tíma.

Tillagan verður kynnt á opnum fundi í Mikla­garði á Vopna­firði, þriðju­daginn 6. febrúar n.k.  kl. 16:00. Hefst fund­urinn með kynn­ingu skipu­lags­ráð­gjafa á tillög­unni.

Tillagan er aðgengileg á vef sveit­ar­fé­lagsins og í gegnum Skipu­lags­gáttina, mál nr. 38/2024 sem er nýr vefur Skipu­lags­stofn­unar.

Almenn­ingi er gefinn kostur á að senda inn ábend­ingar til og með 23. febrúar 2024. Tekið er á móti athuga­semdum á rafrænan hátt í gegnum Skipu­lags­gátt. Hægt er að óska eftir nánari leið­bein­ingum gegnum netfangið sigurdur.jonsson@efla.is

Skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúinn í Vopna­fjarð­ar­hreppi

Sigurður Jónsson

Tillaga deiliskipulags Holtahverfis á Vopnafirði#tillaga-deiliskipulags-holtahverfis-a-vopnafirdi