Bókasafnsdagurinn og alþjóðlegur dagur læsis er í dag 8. september 2023!
Í dag er bókasafnsdagurinn 2022 haldinn hátíðlegur á mörgum bókasöfnum landsins. Markmið dagsins er m.a. að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu.
Bókasafn Vopnafjarðar er staðsett í Vopnafjarðarskóla og þjónustar skólana okkar sem og alla íbúa sveitarfélagsins.
Safnið er öllum opið þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14 til 17 og föstudaga frá kl. 14 til 16.
Árgjald safnsins 2023 er 3.200 krónur.
Lestur er bestur – á öllum tungumálum!
Sjáumst á bókasafninu 🙂