Bókasafnsdagurinn 8. september 2021
Á morgun miðvikudag er bókasafnsdagurinn 2021 haldinn hátíðlegur á mörgum bókasöfnum landsins. Markmið dagsins er m.a. að vekja athygli á mikilvægi bókasafna í samfélaginu.
Bókasafnið okkar hér á Vopnafirði er staðsett í Vopnafjarðarskóla og nýtist bæði skólanum og öðrum íbúum sveitarfélagsins.
Safnið er öllum opið þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 14 til 17 og föstudaga frá kl. 14 til 16.
Skv. gjaldskrá ársins 2021 er árgjald safnsins 3.000 kr.
Lestur er bestur – fyrir jörðina!
Sjáumst á bókasafninu 🙂
Til umhugsunar#til-umhugsunar
Hverju finnst þér að þeir, sem láta sig nátturuna og umhverfið skipta máli, ættu að bæta við á leslistann?
Í tilefni dagsins#i-tilefni-dagsins
Í tilefni dagsins verða engar sektir innheimtar og er því tilvalið að nota tækifærið og skila því efni sem komið er fram yfir skiladag 😊