Nú stendur yfir vinna við áfangastaðaáætlun fyrir Vopnafjörð. Í tengslum við þá vinnu var haldinn stöðufundur með hagaðilum á Vopnafirði 11. mars s.l. og var fundurinn haldinn í Miklagarði.
Fundarstjóri var Inga Hlín Pálsdóttir, ráðgjafi hjá Austurbrú og fyrrum forstöðumaður hjá Íslandsstofu. Á fundinum var María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri hjá Austurbrú, með létta kynningu á Áfangastaðáætlun Austurlands og í framhaldinu fór hún yfir stöðuna á vinnunni við Áfangastaðaáætlun Vopnafjarðar.
Markmiðið var þó aðallega að fá umræður um hvað þarf að leggja áherslu á fyrir sumarið 2021 þegar kemur að móttöku ferðamanna. Unnið var í hópum og náðust góðar umræður um það sem vel hefur verið gert og hvað þarf að gera fyrir sumarið í sumar. Austurbrú tók saman niðurstöðurnar og mun í samstarfi við Vopnafjarðarhrepp ákveða hvaða aðgerðir verður ráðist í.
Annar liður í vinnu áfangastaðaáætlunar er íbúakönnunin sem áður hefur verið auglýst. Könnunin er enn í gangi og verður opin fram yfir páska. Við biðjum þá sem geta að svara þessari könnun en góð þátttaka í henni mun reynast verkefninu afar dýrmæt. Einnig þökkum við þeim sem þegar hafa svarað kærlega fyrir.
Ekki hika við að hafa samband ef þú vilt vita meira um verkefnið:
María Hjálmarsdóttir, maria@austurbru.is, sími: 470 3826 / 848 2218
Kristjana Louise Friðbjarnardóttir, kristjana@austurbru.is, sími: 470 3850 / 847 4482