Veiðidagar Vopnafjarðarhrepps í Hofsá sumarið 2023 eru lausir til umsóknar fyrir íbúa Vopnafjarðar.
Um er að ræða fjóra dagparta á tímabilinu 17. til 19. september 2023.
Umsóknir skulu innihalda nafn, kennitölu, símanúmer og netfang umsækjanda.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps eða á netfangið skrifstofa@vfh.is merkt „Bændadagar 2023“.
Skilyrði fyrir þátttöku er að lögheimili sé skráð í Vopnafjarðarhreppi og þátttökugjald er 1.000 kr.
Umsóknarfrestur er til og með mánudags 29. júní 2023.
Allar umsóknir verða settar í pott sem dregið verður úr þann 30. júní 2023 og í framhaldi af því verður haft samband við veiðileyfishafa.