Kæru foreldrar og forráðamenn!
Frá 4. janúar 2023 verður boðið uppá skóladagvist/frístund fyrir 1. – 4. bekk.
Mánudaga til klukkan 14:30 og þriðjudaga til föstudaga til klukkan 15:30.
Útivera, skipulagt starf, frjálst val og hressing.
Skipulagt starf verður í skólanum og félagsmiðstöðinni. Boðið verður upp á hressingu klukkan 14:30.
Fast mánaðargjald fyrir skóladagvist á árinu 2023 er 8.450 kr. og gjald fyrir hressingu er 210 kr.
Umsóknir má senda á netfangið thorhildur@vfh.is.
Sími starfsmanns frístundar á vistunartíma er 855-3250.
Nánar um skóladagvist/frístund | pdf / 641 kb |