Sundlaugar landsins hafa verið lokaðar síðan 24.mars vegna Covid-19 og var tíminn nýttur hjá starfsfólki til að taka vorþrifin og var sundlaugin máluð og fleira viðhaldstengt. Á þessu ári stóð til að endurnýja blöndunartækin og var það alltaf á áætlun í maí.
Vegna skólasunds sem er búið að vera í gangi síðan 5.maí þá var ekki hægt að fara í endurnýjun blöndunartækja fyrr en á morgun, 18.maí og þykir okkur miður að fólk geti ekki farið í sund strax á morgun en það verður notalegt að fara í góðar sturtur um leið og opnar.
Vil líka minnast á að það er erfitt að manna sundlaugina. Einn starfsmaður er farinn aftur til Spánar og tveir starfsmenn sem munu starfa hér í sumar eru á leið til landsins en þurfa að fara í tveggja vikna sóttkví við komuna til landsins.
Vonandi getur fólk skilið þetta og allir koma kátir í sund von bráðar 🙂 Það er enginn að leika sér að því að loka lauginni og seinka opnun.