Vopnafjarðarhreppur auglýsir eftir aðilum til að stunda vetrarveiðar á ref.
Áhugasamir skili inn umsóknum þar um á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15, Vopnafirði eða á skrifstofa@vfh.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021.
Í umsókn skal koma fram hvar umsækjandi ætlar að staðsetja skothús og stunda vetrarveiðar á ref. Ef umsækjandi ætlar að stunda veiðarnar utan eigin landareignar skal skriflegt leyfi landeigenda fylgja umsókninni. Vopnafjarðarhreppur hyggst gera skriflega samninga við þá veiðimenn sem úthlutað verður leyfum til vetrarveiða á ref. Í þeim samningi mun koma fram að kr. 10.000.- verða greiddar fyrir hvert unnið dýr.
Skilyrði leyfisveitingar er að umsækjandi hafi gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Umhverfisstofnun. Athygli er vakin á því að einungis þeim er ganga frá skriflegum samningi við sveitarfélagið verður greitt fyrir unnin dýr.
Veiðar úr ökutækjum eru bannaðar samkvæmt lögum.