Í dag var dregið úr nöfnum þeirra íbúa sveitarfélagsins sem höfðu skráð sig í lukkupott Vopnafjarðarhrepps vegna veiðileyfa í Hofsá 2022, en umsóknarfrestur rann út þann 29. júní s.l.
Þátttakendum í lukkuleiknum fjölgar ár frá ári og er þeim hér með þakkað fyrir þátttökuna.
Lukkulegum veiðileyfishöfum hefur nú þegar verið tilkynnt um útdráttinn!