Valkyrja danslistarskóli hefur hafið starfsemi á vorönn.
Valkyrja býður upp á dansnám á Vopnafirði fyrir nemendur á aldrinum 3-16 ára. Tímarnir eru samansettir af ballett, nútímadansi og jazz dansi. Mikil áhersla lögð á að nemendur læri að bera ábyrgð á sér og sínum hlutum, sýni sér, öðrum nemendum og kennara virðingu og stundi nám sitt af eljusemi. Skráning fer fram í gegnum Sportabler. Tímabilið er frá 24.janúar til 27.maí og endar með danssýningu í Miklagarði þann dag.
Sjá nánar á heimasíðu Valkyrju danslistarskóla.
Minnum einnig á að Vopnafjarðarhreppur styrkir frístundaiðkun barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára með sérstöku framlagi, að upphæð 20.000 kr á ári og er hægt að nýta frístundastyrkinn upp í æfingagjöldin hjá Valkyrju.
Sjá nánar hér.