Tilkynning frá aðgerða­stjórn á Aust­ur­landi 8. nóvember 2021.

Síðustu daga hefur orðið mikil aukning í fjölda COVID-19 smita á landinu öllu og ljóst að útbreiðslan er tölu­verð. Þá eru sífellt fleiri að greinast utan sótt­kvíar sem þýðir að hópsýk­ingar eða dreifðari smit geta stungið sér niður hvar sem er. Á Vopna­firði hefur komið upp grunur um smit og því verið ráðist í að taka sýni af þeim sem því kunna að tengjast. Aðgerða­stjórn fylgist grannt með og mun senda út tilkynn­ingu þegar niður­stöður sýna­töku liggja fyrir, að líkindum á morgun.

Nú sem aldrei fyrr skiptir miklu að ef við finnum til einkenna sem geta bent til COVID-19 smits að þá förum við í PCR sýna­töku og höldum okkur heima meðan beðið er eftir niður­stöðu. Þannig drögum við úr líkunum á útbreiðslu smita. Þá skipta okkar persónu­legu sótt­varnir miklu í barátt­unni við þennan faraldur, hand­þvottur, sprittun og notkun grímu eins og við kunnum öll svo vel.

Gerum þetta saman, nú sem fyrr.