Tilkynning frá aðgerða­stjórn á Aust­ur­landi 9. nóvember 2021

Í gær var ráðist í viða­mikla sýna­töku á Vopna­firði þar sem upp kom grunur um COVID-19 smit. Tekin voru um 150 sýni og af þeim hafa 8 greinst jákvæð. Enn á eftir að greina tölu­verðan fjölda svo viðbúið er að smit­tölur geti enn hækkað.  

Tvö smit greindust auk þessa á Egils­stöðum í dag og voru viðkom­andi ekki í sóttkví við grein­ingu. Smitrakning stendur yfir. Aðgerða­stjórn fylgist áfram með gangi mála og sendir frá sér tilkynn­ingu þegar niður­stöður liggja fyrir.

Gerum þetta saman, nú sem fyrr.