Tilkynning frá aðgerða­stjórn á Aust­ur­landi 28. desember 2021

Sterkur grunur er um Covid-19 smit sem tengist inn á hjúkr­un­ar­heim­ilið Sundabúð. Í morgun voru tekin sýni af öllum íbúum og starfs­fólki í Sundabúð, í heildina voru þetta 45 sýni. Niður­stöður úr þeirri sýna­töku eru vænt­an­legar í kvöld og snúa fyrstu viðbrögð núna að því að kort­leggja útbreiðslu mögu­legs smits og skipu­leggja viðbrögð.
Í dag milli 17-18 verður opið í sýna­töku á Vopna­firði og eru allir þeir sem hafa einhver einkenni hvattir til að mæta í sýna­töku. Einnig hvetjum við einkenna­lausa til að mæta ef einhver grunur er um að hafa verið í návígi eða samskiptum við einstak­ling sem grun­aður er um Covid-19 smit. Vonast er til að góð mæting verði í sýna­tökuna en þannig fáum við betri mynd af útbreiðslu smita og hægt að bregðast við með viðeig­andi hætti.
Aðgerða­stjórn sendir út frekari tilkynn­ingu þegar niður­stöður úr sýna­töku morg­unsins liggja fyrir, annað­hvort seint í kvöld eða í fyrra­málið. Sýni sem eru tekin á Vopna­firði í kvöld komast ekki suður með flugi fyrr en í fyrra­málið svo niður­stöður liggja ekki fyrir úr þeirri sýna­töku fyrr en í fyrsta lagið annað kvöld.
Hægrt er að nálgast allar upplýs­ingar vef www.covid.is þar sem tölu­legar upplýs­ingar er að finna sem og almennar leið­bein­ingar sem og um skrán­ingar í sýna­tökur.