Tilkynning frá aðgerða­stjórn á Aust­ur­landi 16. janúar 2022

Í síðustu tilkynn­ingum aðgerða­stjórnar hefur endur­tekið verið lögð rík áhersla á mikil­vægi sýna­töku almennt en sérstak­lega hefur orðum aðgerða­stjórnar verið beint til þeirra sem hafa einkenni eða telja sig útsetta fyrir smiti . Viðbrögð hafa verið virki­lega góð og þátt­taka í sýna­töku mikil. Í dag sunnudag voru tekin 239 sýni á Egils­stöðum og Reyð­ar­firði auk þess sem sýna­taka var á Vopna­firði. Þáttaka þessi er afar jákvæð og ekki síður að úr einangrun síðast­liðna daga útskrif­uðust fleiri einstak­lingar en þeir sem greindust með smit.  Þeim fækkar því sem eru í einangrun vegna smita, en þeir nú 105 á Aust­ur­landi. Þessi þróun bendir til að takast muni að ná böndum á þeirri slæmu þróun í smit­bylgj­unni sem uppi var fyrir nokkrum dögum hér eystra.

Reiknað er með að Eskifjarð­ar­skóli, Grunn­skóli Reyð­ar­fjarðar og Nesskóli sem lokaðir voru á föstudag opni á morgun mánudag 17. Janúar. Takmark­anir verða þó í Nesskóla vegna sótt­kvía og einangr­unar þar. Sendar verða út tilkynn­ingar á Mentor sem foreldrar og forráða­menn grunn­skóla­barna í þessum áður­greindum skólum eru beðnir að fylgjast vel með og kynna sér um skóla­starfið framundan.

Sú jákvæða þróun sem að framan er lýst byggir á samstilltu átaki alls og allra í samfé­laginu okkar á Aust­ur­landi. Aðgerða­stjórn þakkar íbúum góð viðbrögð og þátt­töku í persónu­legum smit­vörnum og treystir á áfram­hald­andi góða samvinnu. Í hönd fer tími þorra­blóta sem er tengdur samveru og hópa­myndun í hugum okkar margra. Í því sambandi skal minnt á gild­andi hópa­tak­mörk við 10 manns og það að virða þau mörk er mjög mikilvæg sótt­varna­að­gerð.