Tilkynning frá aðgerða­stjórn á Aust­ur­landi 11. nóvember 2021

Eitt nýtt smit bættist við á Aust­ur­landi í gærkvöldi, viðkom­andi var ekki í sóttkví við grein­ingu. Smitið hefur tengsl við grunn­skólann á Fáskrúðs­firði svo í kjöl­farið var ákveðið í samráði við Aðgerða­stjórn að hafa skólann og leik­skólann á Fáskrúðs­firði lokaða í dag og á morgun, föstudag, á meðan unnið væri að smitrakn­ingu. Um 60 mættu í sýna­töku í morgun á Reyð­ar­firði í tengslum við smitrakn­ingu, niður­stöður úr þeirri sýna­töku er að vænta seint í kvöld eða fyrra­málið.

Á Vopna­firði voru tekin um 100 sýni í gær, hluti af þeim var seinni sýna­taka hjá einstak­lingum í sóttkví. Sýnin voru send með flugi snemma í morgun svo niður­stöður ættu að liggja fyrir í kvöld.

Engin ný smit hafa greinst á Egils­stöðum.

Aðgerða­stjórn fylgist áfram með gangi mála og sendir út frekari tilkynn­ingar þegar nýjar upplýs­ingar berast.