Tilkynning aðgerða­stjórnar á Aust­ur­landi 12.nóvember 2021

Engin ný smit greindust á Aust­ur­landi eftir sýna­töku gærdagsins. Vonir standa til að náðst hafi að hefta útbreiðslu út frá þeim smitum sem greinst hafa á Vopna­firði, Egils­stöðum og Fáskrúðs­firði.

Áfram þurfum við þó að gæta varúðar og hafa lágan þröskuld fyrir því að fara í PCR sýna­töku ef einkenna verður vart.

Hertar samkomutak­mark­anir voru kynntar í morgun og taka gildi á miðnætti, aðgerðastjón hvetur til þess að fólk kynni sér hertar reglur.

Nú sem aldrei fyrr er nauðsyn fyrir að við gerum þetta saman.

https://www.covid.is/undir­flokkar/ad-fordast-smit