Til leigu: Skála­nes­gata 8b

Vopna­fjarð­ar­hreppur auglýsir íbúð sveit­ar­fé­lagsins við Skála­nes­götu 8b til leigu. Um er að ræða vandaða, full­búna íbúð með tveimur svefn­her­bergjum. 

Íbúðin er leigð út með innrétt­ingum og helstu tækjum í eldhúsi (ísskáp, uppþvottavél, ofni og hellu­borði) og á baði (innrétting, sturtu­klefi og vegg­hengt WC). Viðarp­arket og flísar eru á gólfum. Gólf­hiti er á baði og í anddyri.

Íbúðin við Skála­nes­götu 8b:

  • Þriggja herbergja íbúð (tvö svefn­her­bergi), samtals 78,1 fermetrar að stærð.
  • Verönd er fyrir utan stofu. Í stofu og eldhúsi er hátt til lofts (uþb. 3,2m) Lóð verður tyrfð og bíla­stæði hellu­lögð.
  • Húsin eru timb­urhús með einhalla þaki, dökkgrá timb­urklæðning er á útveggjum. Gluggakarmar eru úr PVC.

Umsókn­ar­frestur er til og með 27.sept­ember 2021.