Sýna­töku­tímar á Vopna­firði

Sýna­taka vegna Covid-19 verður á heilsu­gæsl­unni á Vopna­firði miðviku­daginn 19. janúar klukkan 8:30 til 8:50 og föstu­daginn 21. janúar klukkan 12:30 til 13:00.

Mikil­vægt er að bóka sýna­töku á heilsu­vera.is, þá er valið Covid-19 úr list­anum til vinstri og síðan „bóka einkenna­sýna­töku“. Þá er hakað við þau einkenni sem eiga við en einkenna­lausir geta einnig mætt í skimun og haka þá við „skv. tilmælum rakn­ingat­eymis“. Stað­setning sýna­töku er valin sem „Egils­staðir“ og þá fær viðkom­andi sent strika­merki í símann sem þarf að fram­vísa á sýna­tökustað. Foreldrar geta bókað sýna­töku fyrir börn sín á heilsu­vera.is á sama hátt. Ef einhver vand­ræði eru við að fá sent strika­merki þá verður hægt að aðstoða fólk á staðnum.

Þeir sem hyggjast mæta í sýna­töku eru einnig beðnir um að tilkynna komu sína á heilsu­gæsluna á Vopna­firði í síma 470 3070, ef  þess gefst kostur.