Sýna­taka á Vopna­firði í dag 14. janúar!!!

Athugið að auka­sýna­taka vegna Covid 19 verður á Heilsu­gæsl­unni á Vopna­firði í dag föstu­daginn 14. janúar klukkan 12:30.

Mikil­vægt er að bóka tíma í sýna­töku á heilsu­vera.is, þá er valið Covid-19 úr list­anum til vinstri og síðan “bóka einkenna­sýna­töku“. Þá er hakað við þau einkenni sem eiga við en einkenna­lausir geta einnig mætt í skimun og haka þá við “skv. tilmælum rakn­ingat­eymis“. Stað­setning sýna­töku er valin sem “Egils­staðir“ og þá fær viðkom­andi sent strika­merki í símann sem þarf að fram­vísa á sýna­tökustað. Foreldrar geta bókað sýna­töku fyrir börn sín á heilsu­vera.is á sama hátt. Ef einhver vand­ræði eru við að fá sent strika­merki þá verður hægt að aðstoða fólk á staðnum.