Selár­laug barst gjöf

Selár­laug barst á dögunum gjöf frá fjöl­skyld­unni á Síreks­stöðum sem vert er að þakka sérstak­lega fyrir.

Eins og við vitum er mikil­vægt að ósyndir noti armkúta eða sundjakka af viður­kenndri gerð sem sund­stöðum ber að hafa til útláns samkvæmt reglum um öryggi á sund­stöðum.

Gjöfin frá fjöl­skyld­unni inni­hélt armkúta sem missa aldrei flot jafnvel þó vanti loft og einnig sundjakka.

Bestu þakkir til fjöl­skyld­unnar á Síreks­stöðum fyrir þessa góðu gjöf!