Samstarfs­verk­efni um orku­skipti og orku­tengda nýsköpun á Aust­ur­landi

Eygló vermir Austurland#eyglo-vermir-austurland

Samstarfs­verk­efni á grunni hringrás­ar­hag­kerfis, orku­skipta og nýsköp­unar á Aust­ur­landi, sem hlotið hefur nafnið Eygló, var stofnað form­lega í dag. Skrifað var undir samstarfs­samning þess efnis í Fljóts­dals­stöð milli Lands­virkj­unar, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­isins, Aust­ur­brúar og sveit­ar­fé­laga á Aust­ur­landi; Múla­þings, Fjarð­ar­byggðar, Fljót­dals­hrepps og Vopna­fjarð­ar­hrepps.

Heitið Eygló vísar til öflug­asta orku­gjafans, sólar­innar, og til bjartrar og kraft­mik­illar fram­tíðar. Verk­efnið er til fjög­urra ára og nemur fjár­framlag stofn­aðila alls 240 millj­ónum króna.

Megin­markmið Eyglóar er að efla nýsköpun og þróun, með áherslu á að bæta nýtni hlið­ar­strauma og flétta þá inn í nýja verð­mæta­sköpun. Þetta styður við vöxt sprota­fyr­ir­tækja og fjölgar tæki­færum til þátt­töku í alþjóð­legum rann­sókna- og þróun­ar­verk­efnum í samstarfi við fyrir­tæki á svæðinu. Eygló er fjórða svæð­is­bundna samstarfs­verk­efnið sem Lands­virkjun og samstarfs­að­ilar hafa komið á fót, en fyrir eru Eimur á Norð­ur­landi, Orkídea á Suður­landi og Blámi á Vest­fjörðum.

 

Ýtt undir hringrásarhagkerfið#ytt-undir-hringrasarhagkerfid

Ætlunin með Eygló er að leiða saman aðila til að afla alþjóð­legs fjár­magns til tilrauna, rann­sókna og þróunar á orku- og lofts­lagsvænum lausnum. Með auknu samstarfi fyrir­tækja og opin­berra aðila er ýtt undir verk­efni sem byggja á verð­mæta­sköpun úr vannýttu hráefni, bæði úr því sem er til staðar og því sem verður til vegna nýrra verk­efna eða fram­leiðslu.

Ráðgert er að Aust­urbrú auglýsi eftir sérfræð­ingum til starfa við verk­efnið innan skamms.

 

„Hér gefst okkur tækfæri til að virkja það hugvit, auðlindir og þekkingu sem fyrir hendi er í landshlutanum. Sameiginlegt átak og stuðningur öflugra aðila skiptir þó sköpum eigi betri nýting auðlinda og frekari verðmæta- og nýsköpun að verða að veruleika. Það er ánægjulegt að ráðuneytið sé slíkur bakhjarl.“

Guðlaugur Þór Þórðarson, ráðherra umhverfis-, orku- og loftslagsmála

„Lykilinn að árangri við leit að sjálfbærari lausnum til framtíðar er að ólíkir aðilar vinni saman við að koma auga á og þróa áfram nýjar lausnir. Það er mjög ánægjulegt að sjá þetta samstarf milli sveitarfélaga á Austurlandi, ráðuneytisins og Landsvirkjunar verða að veruleika og þannig styðja við uppbyggingu þekkingar og framþróunar á sviði orkutengdrar nýsköpunar á Austurlandi.“

Sigurður H. Markússon, forstöðumaður nýsköpunar hjá Landsvirkjun

"Eygló rímar vel við skýra sýn Austfirðinga um hvernig takast megi á við þær áskoranir sem snúa að loftslagsmálum og hringrásarhagkerfinu sem lagt er fram í svæðisskipulagi Austurlands. Eygló byggir á því að nýta svæðisbundna styrkleika, innviði, fyrirtæki og mannafla til að mynda frjóan jarðveg fyrir nýsköpun og aukna verðmætasköpun. Þessi grunnur og sá slagkraftur sem stuðningur Landsvirkjunar og ráðuneytisins gefa með þessu verkefni mun án efa nýtast öllu Austurlandi til framfara."

Berglind Harpa Svavarsdóttir, stjórnarformaður Austurbrúar og Sambands sveitarfélaga á Austurlandi