Vopnafjarðarhreppur leitar tilboða í rekstur í rými á fyrstu hæð Kaupvangs við Hafnarbyggð á Vopnafirði.
Æskilegt er að viðkomandi hafi þekkingu á markaðsmálum, gaman af mannlegum samskiptum og sé áhugasamur um þjónustu við ferðamenn.
Reynsla af rekstri og þekking á náttúru og staðháttum er æskileg.
Búseta á Vopnafirði er kostur.
Kaupvangur#kaupvangur
- Rýmið á fyrstu hæð hentar vel til framreiðslu veitinga og/eða verslunarreksturs og hefur þar verið rekið kaffihús undanfarin ár.
- Á annarri hæð hússins er opið sýningarrými auk vinnuaðstöðu fyrir Austurbrú og Framhaldsskólann á Laugum.
Umsóknir og nánari upplýsingar#umsoknir-og-nanari-upplysingar
Nánari upplýsinga má leita á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps eða rafrænt á skrifstofa@vfh.is.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps eða rafrænt á skrifstofa@vfh.is eigi síðar en 15. maí 2022.