Reglur um neta­veiði í sjó fyrir landi Vopna­fjarð­ar­hrepps

Á 30. fundi sveit­ar­stjórnar Vopna­fjarð­ar­hrepps, 15. maí s.l., voru samþykktar reglur um neta­veiði í sjó fyrir landi Vopna­fjarð­ar­hrepps og tóku þær gildi frá og með 20. júní 2024.

Reglur þessar eru settar til þess að halda utan um þá veiði sem hingað til hefur verið frjáls, en einnig vegna núver­andi ástands á bleikju­stofni og samkvæmt hvatn­ingu frá Fiski­stofu og Hafrann­sókn­ar­stofnun.  Samkvæmt regl­unum er veiði bönnuð á tíma­bilinu 20. júní til 20. ágúst ár hvert.  Skila þarf veiði­skýrslu vegna veið­anna í lok veiði­tíma­bils til skrif­stof­unnar.

Sækja þarf um heimild til veið­anna á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps, á þar til gerðu eyðu­blaði, og mun fylgja leyfum reglur um neta­veiði í sjó og reglu­gerð um aðbúnað og frágang neta.

Fyrir frekari upplýsingar#fyrir-frekari-upplysingar