Tilkynnt hefur verið um úthlutun styrkja úr Orkusjóði til nýrra verkefna við leit og nýtingu jarðhita 2023—2025 til almennrar húshitunar á svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía til húshitunar.
Vopnafjarðarhreppur er sem kunnugt er „kalt svæði“ og sótti um styrk í verkefnið í sumar. Alls bárust 25 umsóknir. Nú hefur verið tilkynnt að Vopnafjarðarhreppur er eitt átta verkefna sem hlaut styrk og fékk sveitarfélagið úthlutað 40 mkr.
Styrkurinn verður nýttur í að leita eftir heitu vatni í sveitarfélaginu á næstu misserum.
Hér má sjá nánar um jarhitaleitarátakið.