Frá og með mánudeginum 8. febrúar 2021 er opnun líkamsræktar í íþróttahúsi með eftirfarandi skilyrðum:
- Nauðsynlegt er að gestir panti tíma hyggist þeir nýta sér aðstöðu í líkamsrækt.
- Sjö gestir geta æft í einu og í hámark 60 mínútur í senn.
- Gestir passa að mæta þvegnir og sprittaðir í bak og fyrir.
- Búningsklefar eru ekki opnir fyrir gesti líkamsræktar.
- Grímuskylda er á göngum og þar sem ekki er unnt að virða tveggja metra regluna.
- Hver og einn sótthreinsar samviskusamlega eftir sig þau tæki sem hann notar.
Við treystum því að fólk virði þessar reglur og fylgi þeim í einu og öllu.
Tímapantanir#timapantanir
Tekið er á móti tímapöntunum í síma 473 1492 frá klukkan 10 og leyfilegt er að bóka fram í tímann.