Nýr safn­stjóri á Bust­ar­felli

Anna Guðný Gröndal hefur verið ráðin safn­stjóri við Minja­safnið Bust­ar­felli, í 50% starf frá 1. júní 2025. Hún kom í viku tíma fyrir opnun safnsins og kom aftur til starfa í viku nr. 24, en safnið hefur verið opið frá 1. júní og þegar er búið að taka á móti skóla­hópum og öðrum gestum ásamt opnun á kaffi­húsinu, Hjáleig­unni.

Anna Guðný hefur lokið BA prófi í sagn­fræði við Háskóla Íslands og mun á þessu ári einnig ljúka meist­ara­námi í „Cultural heritage and sustaina­bility“, eða menn­ing­ar­arfur og sjálf­bærni, við Uppsala­há­skóla í Svíð­þjóð.

Hún hefur mikinn áhuga á menn­ingu og sögu, og að starfa í því umhverfi, ásamt því að miðla þeim verð­mætum  áfram. Þá hefur hún reynslu af safn­a­starfi í gengum Þjóð­minja­safnið þar sem hún starfaði við móttöku og sýning­ar­gæslu ásamt því að fara með leið­sagnir um sýningu safnsins. Einnig hefur hún unnið í  skrán­ingum bæði fyrir Mark­aðs­stofu Reykja­ness og fyrir Umhverfis-, orku og loft­lags­ráðu­neyti, þar sem hún tók þátt í umsókn fyrir Snæfellsnes Vist­vang hjá UNESCO.

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps samþykkti á 37. fundi sínum, sem haldinn var 12. desember 2024, að „…taka yfir daglegan rekstur Bust­ar­fells og felur sveit­ar­stjóra að vinna að nánari útfærslu sem lögð verður fyrir sveit­ar­stjórn.“ Eftir að hafa skoða það, og í samráði við KPMG, þá mun safnið verða rekið áfram með svip­uðum hætti og á sinni eigin kenni­tölu, sem mun halda utan um allan rekstur safnsins og auðvelda meðal annars umsóknir um styrki ofl.þ.h., en sveit­ar­fé­lagið sem eigandi safnsins styðja áfram við rekst­urinn, með svip­uðum hætti og áður með föstum samn­ingi og einnig með öðrum hætti. Þá mun áfram verða samstarf við Þjóð­minja­safnið, sem eiganda húsa­kosts, um viðhald og endur­bætur.

Þetta þýðir að Hjáleigan verður áfram rekin á vegum safnsins, og starfs­mann ráðnir til safnsins, en fundin verður leið til þess með hvaða hætti sveit­ar­fé­lagið getur stutt meira og betur við rekst­urinn.

Það er mikill fengur að vera búin að ráða nýjan safn­stjóra, með þá menntun og reynslu sem Anna Guðný hefur, og er vonast eftir góðu samstarfi við hana og  halda áfram öflugu starfi sem og að innleiða nýjungar með því að kynna safnið og auka veg þess að virð­ingu í samfé­laginu.

Eyþór Bragi Bragason, sem áður var safn­stjóri Bust­ar­fells verður frá og með sama tíma stað­ar­haldari og tekur við því starfi af móður sinni Björgu Einars­dóttur sem hefur nú sinnt safninu meira og minna í 40 ár og er henni færðar bestu þakkir fyrir óeig­ingjarnt starf, fyrir Minja­safnið Bust­ar­fell og samfé­lagið.

Á meðfylgj­andi mynd má sjá Eyþór Braga afhenda lyklana af minja­safninu til Önnu Guðnýar, um nýliðin mánað­armót.