Framkvæmdir eru í fullum gangi við byggingu á samtals átta íbúðum í tveimur raðhúsum við Skálanesgötu. Um er að ræða vandaðar, fullbúnar íbúðir með einu eða tveimur svefnherbergjum. Sex af þessum íbúðum eru í eigu Vopnafjarðarhrepps og eru hér með auglýstar til leigu.
Íbúðirnar verða leigðar út með innréttingum og helstu tækjum í eldhúsi (ísskáp, uppþvottavél, ofni og helluborði) og á baði (innrétting, sturtuklefi og vegghengt WC). Viðarparket og flísar eru á gólfum. Gólfhiti er á baði og í anddyri.
Íbúðirnar við Skálanesgötu 8b, 8c, 8d,8e, 8f og 8g:
- Tveggja herbergja íbúð (eitt svefnherbergi), samtals 55,9 fermetrar að stærð.
- Þriggja herbergja íbúð (tvö svefnherbergi), samtals 78,1 fermetrar að stærð.
- Verönd er fyrir utan stofu. Í stofu og eldhúsi er hátt til lofts (uþb. 3,2m) Lóð verður tyrfð og bílastæði hellulögð.
- Húsin eru timburhús með einhalla þaki, dökkgrá timburklæðning er á útveggjum. Gluggakarmar eru úr PVC.
Auglýst er eftir umsóknum um íbúðirnar.
Umsóknarfrestur er til og með 1.október 2020.