NÝ TILKYNNING frá aðgerða­stjórn 28. desember 2021

Niður­stöður úr sýna­töku á Vopna­firði liggja nú fyrir en í morgun voru tekin 45 sýni úr öllu starfs­fólki og íbúum hjúkr­un­ar­heim­il­isins Sunda­búðar. Af þessum 45 sýnum voru 5 jákvæð og eru þau bæði meðal íbúa og starfs­manna hjúkr­un­ar­heim­il­isins. Vegna veðurs var sýna­töku sem vera átti á milli klukkan 17 og 18 í kvöld frestað og verður hún á milli klukkan 8 og 9 í fyrra­málið. Niður­stöður úr þeirri sýna­töku eru vænt­an­legar annað kvöld. Vegna óvissu um uppruna smits og að smitrakning stendur enn yfir verður lokað í leik­skól­anum, sund­laug og íþrótta­húsinu á Vopna­firði á morgun miðvikudag og frekari upplýs­inga að vænta annað kvöld.
Það verður mikil áskorun í þessum aðstæðum að manna hjúkr­un­ar­heim­ilið og eru því einstak­lingar sem telja sig geta aðstoðað við vinnu á hjúkr­un­ar­heim­ilinu hvattir til þess að setja sig í samband við Emmu Tryggva­dóttur fram­kvæmda­stjóra hjúkr­unar í Sundabúð í: emma@vopna­fjar­dar­hreppur.is
Þetta er stórt verk­efni og aðgerða­stjórn hvetur alla þá sem einkenni hafa að mæta í sýna­töku og vera þannig þátt­tak­endur í að takast á við þetta.
Gerum þetta saman hér eftir sem hingað til.