Vopnafjarðarhreppur óskar eftir tilboðum í matseld fyrir mötuneyti Vopnafjarðarskóla og leikskólans Brekkubæjar.
- Afhending útboðsgagna 21. júní 2022
- Tilboðsfrestur 4. júlí 2022 kl. 16:00
- Upphaf verktíma 4. ágúst 2022 á Brekkubæ og 23. ágúst 2022 í Vopnafjarðarskóla
- Samningstími 3 ár
Áhugasamir hafi samband í síma 473 1300 eða á netfangið skrifstofa@vfh.is.
Gögn eru eingöngu afhent rafrænt með tölvupósti.