Hreinsun eftir áramót

Mikið rusl fellur til um áramót þegar tonnum af flug­eldum er skotið á loft.

Nokkuð mikið er um það að tómir flug­elda­kassar, spýtur og prik liggi á víð og dreif um bæinn í upphafi árs og biðlum við til íbúa og fyrir­tækja á svæðinu að huga að nærum­hverfi sínu og taka til eftir áramótagleðina.