Frá aðgerða­stjórn á Aust­ur­landi 23. febrúar 2022

Eftir ríkis­stjórn­ar­fund í dag bárust þau tíðindi að öllum sótt­varn­ar­tak­mörk­unum verði aflétt aðfaranótt föstu­dags, innan­lands og á landa­mærum.

Í kjöl­farið munu breyt­ingar gerðar hjá HSA á fyrir­komu­lagi sýna­töku vegna COVID-19.  Fyrir­komu­lagið verður þannig: 

  • Einungis hrað­grein­ingar­próf verða í boði fyrir almenning.
  • Tíma í hrað­greingar­próf skal panta í gegnum heilsu­vera.is
  • Jákvætt hrað­grein­ingar­próf nægir sem greining á Covid-19.
  • Jákvæð greining í heima­prófi skal stað­fest í hrað­grein­ingar­prófi hjá heilsu­gæslu eða einka­fyr­ir­tækjum (sem skrá í sjúkra­söguna).
  • PCR próf verða ekki lengur í boði fyrir almenning.
  • Ekki verður lengur krafa um stað­fest­ingu smits með PCR prófi.
  • PCR próf verður eingöngu gerð að ábend­ingu læknis vegna alvar­legra einkenna Covid-19.
  • PCR próf verða gerð fyrir þá sem þurfa þau vegna ferða erlendis og þá gegn gjaldi.
  • Einangrun smit­aðra er ekki skylda, en tilmæli er um 5 daga einangrun frá sótt­varna­yf­ir­völdum.
  • Einkenna­lítið smitað fólk getur mætt til vinnu en fari eftir leið­bein­ingum um smitgát í 5 daga.

Frekari upplýs­ingar má finna á vef HSA,Breyt­ingar á rann­sóknum til grein­ingar á COVID-19 (hsa.is)

Aðgerða­stjórn óskar íbúum til hamingju með þessi tíðindi en áréttar sem fyrr mikil­vægi þess að við förum varlega meðan staðan í umdæminu er viðkvæm og smit mörg. Minnt skal í því sambandi á að grímuna er enn gott að eiga og nota þegar við umgöng­umst viðkvæma hópa og einstak­linga.