Fjár­hags­áætlun Vopna­fjarð­ar­hrepps 2022 til 2025

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps stað­festi á fundi sínum þann 14. desember 2021, fjár­hags­áætlun Vopna­fjarð­ar­hrepps fyrir árið 2022 og áætlanir til næstu þriggja ára.

Rekstrarafkoma#rekstrarafkoma

Rekstr­araf­koma A og B hluta er áætluð jákvæð um 44 millj­ónir króna á árinu 2022.

Fjár­hags­áætl­unin er sett fram samkvæmt lögum og reglum um reikn­ings­skil sveit­ar­fé­laga. Starf­sem­inni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starf­semi sem að hluta eða öllu leyti er fjár­mögnuð með skatt­tekjum. Um er að ræða aðalsjóð, eigna­sjóð og þjón­ustumið­stöð. Til B-hluta teljast fjár­hags­lega sjálf­stæð fyrir­tæki sem að hálfu eða meiri­hluta eru í eigu sveit­ar­fé­lagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjár­magn­aður með þjón­ustu­tekjum.

Fjárfestingar#fjarfestingar

Fjár­fest­ingar ársins 2022 eru áætl­aðar 65 milljón króna.

Helstu fjár­fest­ingar á árinu 2022 eru endur­nýjun á sturtu­klefum í íþrótta­húsi, endur­bætur á sund­laug og félags­mið­stöð, bætt hljóð­vist í leik­skóla auk lokafrá­gangs á lóð leik­skólans. Einnig verður skólalóð Vopna­fjarð­ar­skóla hönnuð og betr­um­bætt og farið verður í viðhald í gamla skóla. Í samgöngum verður haldið áfram að bæta göngu­stíga og bæta við bekkjum. Í Sundabúð verður farið í  múrvið­gerðir, máln­ing­ar­vinnu og bætta útiað­stöðu. Einnig er reiknað með að leigu­íbúðir verði endur­bættar eftir því sem aðstæður leyfa. Farið verður í fram­kvæmdir við vatns­veituna í Vesturárdal.

Skulda­viðmið samstæðu A og B hluta verður 57,5% í árslok 2022 og skulda­hlut­fall samstæðu A og B hluta verður 71,4% í árslok 2022.

Fjárhagsáætlun 2022#fjarhagsaaetlun-2022